Skilmálar

Upplýsingar um seljanda:
Regn-import ehf. kt: 491020-0240, Garðshorni 801 Selfossi.

Greiðsla:
Hægt er að greiða vörur í vefversluninni með eftirfarandi hætti:

Greiðslukort: Með VISA eða MASTERCARD í gegnum örugga greiðslusíðu Korta.is
Greiðsluseðill Pei

Verð á vöru og sendingakostnaður:
Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Ylja.shop áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun.

Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Ylja.shop ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Ylja.shop til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Upplýsingar viðskiptavina:
Við pöntun fyllir kaupandi út upplýsingar um nafn, tölvupóstfang og heimilisfang.
Við pöntun samþykkir kaupandinn að þessar upplýsingar fari í viðskiptavinagagnagrunn okkar.
Ylja shop ábyrgist að farið sé með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál og þær verði ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Við sendum vörur frá okkur mánudaga, miðvikudaga og föstudaga með Póstinum. 

Vöruskil og skipti:
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi
hætti hvenær varan var keypt.
Útsöluvörum fæst hvorki skilað né skipt.
Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum.
Varan er send til baka á kostnað kaupanda. 
Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og fær viðkomandi endurgreitt. Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur. 

Gölluð vara:
Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum bent á að hafa samband við okkur á netfangið ylja@ylja.shop.

Trúnaður:
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á: ylja@ylja.shop